Nýlistasafnið Í Reykjavík

Smelltu

PYLSUR ÁN LANDAMÆRA
17.06-19.07

Olof Olsson
Daniel Salomon

Nýtt alþjóðlegt pylsufyrirtæki verður sett á laggirnar í Reykjavík þann 17. júní. Þessi atburður mun valda þáttaskilum í pylsumenningunni og í sögu pylsugerðar. Um langt árabil hefur pylsan verið á undanhaldi og skyndibitar eins og hamborgarar, pizzur, kjúklingar og sushi hafa lagt undir sig heiminn.Kolbasoj sen Limoj er Esperanto og þýðir “pylsur án landamæra”. Fyrirtækið mun framleiða alþjóðlegar pylsur af hæsta gæðaflokki. Með því að nota aðeins lífrænt ræktað íslenskt lambakjöt sem hráefni í pylsurnar verða þær aðgengilegar viðskiptavinum af öllum trúarbrögðum. Og með því að nota Esperanto í sínum viðskiptum mun Kolbasoj sen Limoj sinna alþjóðaviðskiptum í sönnum anda heimssamvinnu. Stofnendur Kolbasoj sen Limoj eru listamennirnir Olof Olsson og Daniel Salomon. Þeir hafa notað alþjóðalega tungumálið Esperanto sem grundvöll að ýmsum uppákomum eins og húsgagnahönnun, gamanþætti í sjónvarpi og knattspyrnuliði. Nánari upplýsingar um þetta má sjá á vefsíðu þeirra www.laloko.org

Myndir frá sýningunni:

Smelltu

Smelltu

Smelltu


analoji fen bilgisi