Nýlistasafnið Í Reykjavík

Smelltu

BJÖRK-DANNI-HILDUR
15.07-07.08

Björk Guðnadóttir
Daníel Magnússon
Hildur Bjarnadóttir

Björk er fædd í Reykjavík 1969. Að loknu stúdentsprófi nam hún klæðskurð við ESMOD í París og myndlist við fornámsdeild Atelier Hourdé. 1994 hóf hún nám við Oslo Kunstakademi og var einn vetur við Myndlista- og Handíðaskóla Íslands sem skiptinemi, lauk M.A.gráðu frá Umea Konsthögskola Svíþjóð 1999 og hlaut viðurkenningu Umea Kommune. Tilvistarlegar hugleiðingar og mannlegt eðli er drifkrafturinn að listrænni vinnu hennar. Á sýningu hennar núna mun hún sýna innsetningu sem var hennar framlag í sýninguna Volcana, an Icelandic Panorama sem var sett upp í Winnipeg í Kanada í fyrra.

Daníel Magnússon útskrifaðist úr Myndlistar og handíðaskólanum 1987 og hefur auk þess að starfa sem myndlistarmaður getið sér gott orð sem hönnuður. Hann mun á sýningu sinni núna sýna textaverk og vídeó.

Hildur Bjarnadóttir er fædd í Reykjavík 1969. Hún stundaði nám við textíldeild Myndlista og handíðaskólans og framhaldsnám við nýlistadeild Pratt Institute í New York. Hún kallar sýningu sína Fleti. Hildur hefur vakið athygli fyrir verk sín sem hún vinnur á nýstárlegan hátt úr textílhefð og ögrar um leið hefðbundinni nálgun conseptlistamanna. Eða eins og listfræðingurinn Auður Ólafsdóttir segir í grein sinni um Hildi; "Strigaverk Hildar er án myndar, það er handverkið sjálft sem er verkið. Með því móti hefur Hildur í raun endaskipti á þeirri röksemdafærslu margra konseptlistamanna að efnisleg útfærsla verks sé aukaatriði." Hildur hefur hlotið fjölda viðurkenninga á ferli sínum og var nú fyrir skömmu tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna.

Myndir frá sýningunni:

Smelltu

Smelltu

Smelltu


analoji fen bilgisi