|
"OFCOURSE IT WELCOMES THE FOREIGNERS,THE BOUNDARY" Pétur Már Gunnarsson frá Íslandi , Johann Maheut frá Frakklandi og Toshinaro Sato frá Japan standa saman að sýningunni "Of course, it welcomes the foreigners, the boundary". Með hliðsjón af landfræðilegri og menningarlegri legu Íslands, samtímis á mörkum og í fararbroddi listasenunnar, verða hugtökin ,,mæri" og ,,þröskuldur", ,,rammi" og ,,yfirborð" kölluð á teppið og þau borin saman við framsetningu og skynjun. Það þarf aðeins að taka örfá skref í viðbót til að standa samhliða afskræmdum einfaldleika samhverfa Péturs Más Gunnarssonar, en þá þyrfti líka að grípa fyrir augun í öllum þeim kröppu beygjum sem Johann Maheut býður upp á í verkum sínum, sem stundum felast og stundum laumast á braut.... Jafnframt þessu sýnir Toshinari Sato röð ljósmynda sem teknar eru víðsvegar um heiminn: fyrirmyndin leysist upp í ljós og liti, fyrirbæri sem kalla má sam-mannleg, og eru algjörlega sneyddar vísbendingum um hvar myndatakan átti sér stað. Gestum er boðið að feta þennan slóða eins og línudansari frá einum skilaboðum til annarra. Myndir frá sýningunni: |
|
