Nýlistasafnið Í Reykjavík

Smelltu

SAFNEIGNIN TIL SÝNIS
24.09-01.10
Félagar Nýlistasafnsins


Nýlistasafnið er samkvæmt sérkennilegri hefð grasrótarfyrirbæri. Það er sett saman og haldið við vegna þess að borgarar Reykjavíkur á átttunda, níunda, tíunda og jafnvel þeim fyrsta afneituðu sköpunarverkum barna sinna. Stofnanir þeirra Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Myndlista- og handíðaskólinn misskildu og vanræktu tilfinninga og vitsmunaflæði heilla kynslóða. Þær afneituðu þeim ekki bara heldur níddu niður skó þeirra sérstaklega í umfjöllun þeirra fjölmiðla sem þeir réðu yfir, Morgunblaðinu og Sjónvarpinu. Safneignin á erfitt með að líta í spegil og brosir alls ekki framan í hann. Hún á erfitt með að hitta fólk á förnum vegi. Sjái hún gamlan forstöðumann eða stjórnarmeðlim tekur hún gjarnan á rás yfir á gangstéttina hinu megin til að þurfa ekki að standa augliti til auglitis við gamlan vanmátt. Þetta er sárt. Ég veit ösköp vel að ekki er hægt að breyta því sem er liðið. Við sitjum upp með karmað okkar. Ég veit líka að það á ekki að líta á ófarir okkar og ógæfu sem einhvern hrylling heldur sem jarðveg fyrir kærleiksblómið að spretta upp úr. Fegursta lótusblómið vex í mesta skítnum. Við vitum heldur ekki hvernig viðrar á morgun í raun og veru. En í dag getum við gert ýmislegt. Ef við vöndum okkur í dag og gerum það sem við vitum best og réttast fer okkur að líða betur. Á morgun fer okkur þá að líða betur með gærdag-inn. Ef við höldum þessu áfram eignumst við nýja fortíð sem okkur líður miklu betur með. Þetta gæti leitt til þess að stoltasta safneign landsins næði að brosa framan í landsmenn og gesti þeirra.
Goddur

Myndir frá sýningunni:

Smelltu

Smelltu

Smelltu


analoji fen bilgisi